www.isalp.is - Forum Kunena Site Syndication http://isalp.net/ Mon, 21 May 2012 02:12:34 +0000 Kunena 1.6 http://isalp.net/components/com_kunena/template/default/images/icons/rss.png www.isalp.is - Forum http://isalp.net/ en-gb Titill: Petzl Elios hjálmur til sölu - af: Astrid Daxböck http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13252-petzl-elios-hjalmur-til-soelu.html#13252 http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13252-petzl-elios-hjalmur-til-soelu.html#13252
8000isk

Hafið samband á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ]]>
Keypt & selt Sun, 20 May 2012 15:35:36 +0000
Titill: Snjóflóð í Glerárdal - af: Sveinn Friðrik Sveinsson http://isalp.net/forum/5-almennt/13243-snjofloe-i-glerardal.html#13243 http://isalp.net/forum/5-almennt/13243-snjofloe-i-glerardal.html#13243 web.mac.com/s.sigurdsson/Myndir/Blog/Entries/2012/5/16_.....skall_n%C3%A6rri_%C3%AD_dag.html]]> Almennt Thu, 17 May 2012 22:01:17 +0000 Titill: Miðar á Banf til sölu - af: Arnar Gauti Reynisson http://isalp.net/forum/5-almennt/13241-miear-a-banf-til-soelu.html#13241 http://isalp.net/forum/5-almennt/13241-miear-a-banf-til-soelu.html#13241
Keypt á midi.is, sendi bókunarnúmerið á þann sem kaupir.
s. 844-2508]]>
Almennt Thu, 17 May 2012 13:12:27 +0000
Titill: TS - Salomon Super Mountain 9 - af: Sigurbjörn Gunnarsson - Böbbi http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13234-ts-salomon-super-mountain-9.html#13234 http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13234-ts-salomon-super-mountain-9.html#13234 Stærð 42
Lítið notaðir

10.000 kr.



Frekari upplýsingar í s. 821 1371]]>
Keypt & selt Tue, 15 May 2012 13:27:22 +0000
Titill: TS - Salomon Super Mountain 9 - af: Sigurbjörn Gunnarsson - Böbbi http://isalp.net/forum/5-almennt/13233-ts-salomon-super-mountain-9.html#13233 http://isalp.net/forum/5-almennt/13233-ts-salomon-super-mountain-9.html#13233 Stærð 42
Lítið notaðir

Frekari upplýsingar í s. 821 1371]]>
Almennt Tue, 15 May 2012 13:26:27 +0000
Titill: BANFF - af: Hilmar Ingimundarson http://isalp.net/forum/5-almennt/13230-banff.html#13230 http://isalp.net/forum/5-almennt/13230-banff.html#13230
Þeas að hafa það á kvöldinu fyrir frídag og um kvöldið á frídegi?

Markhópurinn er klárlega að huga að því að fara útúr bænum til að reyna að nýta þessar fáu "löngu" helgar sem við eigum eða var kannski ekkert spáð í svoleiðis hlutum?

Einn frekar óánægður félagi sem sér framá það að missa af BANFF þetta árið,

kv.himmi]]>
Almennt Mon, 14 May 2012 16:05:52 +0000
Titill: Ársrit til sölu á Banff - af: Árni Stefán Haldorsen http://isalp.net/forum/5-almennt/13219-arsrit-til-soelu-a-banff.html#13219 http://isalp.net/forum/5-almennt/13219-arsrit-til-soelu-a-banff.html#13219
Við ætlum að vera með ársritapakka til sölu á Banff. Þeir munu innihalda (ótrúlegt en satt) öll útgefin ársrit klúbbsins frá upphafi auk gömlu tímaritanna sem gefin voru út áður en skipt var yfir í ársrit. Ég tek þó fram að það er ekki búið að taka pakkana saman og því mögulegt að ekki séu til allar útgáfur gömlu tímaritanna.

Pakkinn verður í sérstökum viðhafnarpakningum (þ.e. plastpokum) og kostar litlar 10.000 kr, en aðeins verður hægt að greiða í beinhörðum peningum.

Við verðum líklega með stök rit líka ef einhvern vantar í safnið.

Þá verður hægt að nálgast glóðvolg félagsskírteini þarna (á við þá sem greiddu árgjaldið núna í vor). Það sem ekki gengur út verður sent í pósti eftir Banff.

Sjáumst í Bíó Paradís!]]>
Almennt Thu, 10 May 2012 20:42:08 +0000
Titill: Banff byrjar í kvöld, miðasalan er í fullum gangi - af: Atli Pálsson http://isalp.net/forum/5-almennt/13204-banff-byrjar-i-kvoeld-mieasalan-er-i-fullum-gangi.html#13204 http://isalp.net/forum/5-almennt/13204-banff-byrjar-i-kvoeld-mieasalan-er-i-fullum-gangi.html#13204
Eins og flestir hafa sennilega tekið eftir þá er Banff á næsta leyti, allt um það hér www.isalp.is/banff

Margir muna kannski eftir að það seldist upp í fyrra en nú í ár er mun meira sætaframboð og hægt að kaupa miða í forsölu þannig að félagar Ísalp geta tryggt sér miða tímanlega.

Félagar Ísalp fá að sjálfsögðu miðann á klúbbverði. Til að kaupa miða á klúbbverði þarf að fara niður í Bíó Paradís og hafa með sér félagsskírteini. Þeir sem eru ekki með skírteini geta sagt til nafns og starfsfólk bíósins athugar félagatalið.

Nú er bara að drífa í að tryggja sér miða!

Stjórnin]]>
Almennt Tue, 08 May 2012 00:13:01 +0000
Titill: allir á Hnúkinn! - af: Ívar F Finnbogason http://isalp.net/forum/5-almennt/13194-allir-a-hnukinn.html#13194 http://isalp.net/forum/5-almennt/13194-allir-a-hnukinn.html#13194
Mig langaði í tilefni af þessu að besserwissast smá og dæmi hver fyrir sig um hversu gáfuleg eða viðeigandi orð mín eru.

Það er einfaldlega þannig í huga almennings að það að hafa farið í gegnum þjálfun í bj.sv. jafngildir því að vera orðin gersamlega ósigrandi sérfræðingur í fjallamennsku. Við sem vitum betur vitum hinsvegar að þjálfunin er mjög misjöfn og að það er mjög misjafnt hvað hver og einn tekur með sér frá þeirri þjálfun.

Fyrir þá sem fá nú hringingar frá vinnum, ættingjum eða rekstaraðilum sem vilja að viðkomandi fari með sig á Hnúkinn eru hér nokkrir punktar til umhugsunar.

# Það er grundvallar atriði að geta ratað – GPS eitt sér er ekki nóg – menn verða líka að kunna að bjarga sér ef batteríin klárast.

# Sprungubjörgun virðist vera ótrúlega flókin aðgerð. Ef menn ætla að geta framkvæmt sjálfs- eða félagabjörgun í erfiðum veðrum og aðstæðum ættu þeir að geta gert það í æfingaraðstæðum (uppi á jökli í snjó, ekki í bílskúrnum) eins og að drekka vatn. Sé lausnin einfaldlega að taka með sér nóg af prússikböndum, karabínum og öðru drasli og ætla bara að redda sér þá þýðir það einfaldlega að viðkomandi kann ekki til verka.

# Sá sem fer fyrir hópi óreyndra ætti að hafa mikla reynslu og þekkingu sjálfur.

# Verið tilbúin að snúa við í tíma.

# Þeir sem þiggja laun fyrir að fara með aðra í ferðalög verða að hafa tilskilin leyfi til þess. Komi eitthvað upp á þá er mögulegt að þeir sem bera af því skaða eigi skaðabótakröfu á viðkomandi.

Og nú veit ég að Sissi iðar í skinninu að vita hvað orsakar þessi skrif mín núna. Það sem gerðist um helgina var víst eitthvað á þá leið að ónefndur „gæd“ fann ekki leiðina niður af Hnúknum og ráfaði um með sína „viðskiptavini“ í um fjóra tíma í litlu skyggni og erfiðu veðri. Á þeim tíma var komið inn á erfið sprungusvæði (sumir segja verið við það að ganga fram af Hnúknum vestanmegin) og þá má leiða að því líkur að viðkomandi hafi ekki haft þekkingu til að bjarga sér eða öðrum úr sprungu í erfiðum aðstæðum, amk ekki á þeim hraða sem þyrfti til að koma í veg fyrir að aðrir í hópnum annað hvort færu sér á voða eða liðu af alvarlegri ofkælingu.

Nokkrir gædar frá einhverju ferða“félagi“ tóku þá réttu ákvörðun á sama tíma að snúa frá þar sem farið var að fenna yfir sprungur og þeir sáu þær ekki (vitna í einn „félagsmanna“ þeirra sem var með í för). Það hlýtur að teljast ákaflega góð ákvörðun að snúa við ef menn treysta sér ekki til að ferðast um sprungusvæði án þess að sjá hvar sprungurnar eru og eiga viðkomandi skilið lof í lófa fyrir. Hinsvegar er kannski rétt að geta þess að sprungur í snjó sjást almennt ekki og því dálítið barnalegt að vera leiðsögumaður á Hvannadalshnúk og geta ekki ferðast um jökulinn án þess að sjá sprungurnar.

Ég skil hinsvegar vel ef menn hætta við vegna þess að verður eru erfið og auka líkur á að fallið sé í sprungu. Í þannig aðstæðum hef ég oftar en ég hef tölu á einfaldlega snúið við - ég geri ráð fyrir að þannig að aðstæður verið á laugardaginn – enda er það ekki toppurinn sem skiptir máli heldur fyrst og fremst upplifunin af góðum degi á fjöllum!

En bottom line: Á jöklum eru góðar líkur á slæmum veðrum svo menn verða að vera undirbúnir undir það. Fatnaður, leiðsögutæki, kunnátta. Þar eru einnig góðar líkur á að detta ofan í sprungu þannig að menn verða að vera búnir undir það, línuvinna, sprungubjörgun og viðeigandi búnaður. Sá sem hefur ekki mjög gott vald á þessum hlutum á ekki að taka að sér að ferðast með óvönu fólki, hann/hún á að afla sér reynslu með jafningjum sínum sem í sameiginlegu átaki geta vonandi leyst þau vandamál sem upp koma, eða læra af þeim sem hafa meiri reynslu.

Góðar stundir
Ívar F. Finnbogason.

P.s. það er þunnt á sprungum á Öræfajökli, menn hafa jafnvel verið að stíga í geng á skíðum.]]>
Almennt Mon, 07 May 2012 15:52:47 +0000
Titill: Telemark pakki til sölu - af: Helga Björt Möller http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13191-telemark-pakki-til-soelu.html#13191 http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13191-telemark-pakki-til-soelu.html#13191
Rossignol Big Bang skíði 177 cm. Mál 110-74-100
Scarpa T2 kvenskór nr 7 (40-41)
Rottefell bindingar

Dótið er vel notað en það er enn góð spenna í skíðunum og þau í fínu standi.

Frekari upplýsingar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða 692-7348

Tilboð óskast.]]>
Keypt & selt Sun, 06 May 2012 18:50:55 +0000
Titill: Óska efitr Black Diamond O1 telemarkbindingum - af: Rakel Ósk Snorradóttir http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13190-oska-efitr-black-diamond-o1-telemarkbindingum.html#13190 http://isalp.net/forum/10-keypt-a-selt/13190-oska-efitr-black-diamond-o1-telemarkbindingum.html#13190 Ef þú átt slíkar bindingar til sölu og þær eru vel með farnar skal ég gjarnan kaupa þær.

Rakel Ósk s: 8652086

]]>
Keypt & selt Thu, 03 May 2012 20:13:21 +0000
Titill: Grænlandsjökull - af: Bragi Freyr Gunnarsson http://isalp.net/forum/5-almennt/13187-graenlandsjoekull.html#13187 http://isalp.net/forum/5-almennt/13187-graenlandsjoekull.html#13187 graenland2012.wordpress.com/]]> Almennt Wed, 02 May 2012 09:59:09 +0000 Titill: Skessuhorn NA-hryggur - af: Haraldur Guðmundsson http://isalp.net/forum/7-is-og-alpaklifur-/13186-skessuhorn-na-hryggur.html#13186 http://isalp.net/forum/7-is-og-alpaklifur-/13186-skessuhorn-na-hryggur.html#13186
Undirritaður fór ásamt Guðmundi Inga Haraldssyni og Björgu Guðmundsdóttir í verkalýðsklifur á 1. maí. Við fórum NA-hrygg Skessuhorns (II, 300m) sem er í fínum aðstæðum, fullt af snjó og ís í höftunum. Pabbi dró fram brodda og axir eftir 35 ára "pásu" og Björg systir var í fyrsta sinn á Skessuhorninu. Tókum eina fasta spönn, restina á hlaupandi.

Frábær dagur og gáfum okkur góðan tíma til að njóta útsýnis og spá í margbreytilega jarðfræði Skarðsheiðarinnar. Leiðin er eins og alltaf stór skemmtileg og eins góð klassísk fjallamennska og hún gerist. VIð brostum allan hringinn þegar við stóðum við vörðuna á toppnum :o)

Eitthvað var af ís og snjó í hinum hornum. Hægt að skíða vel inn í maí þarna um slóðir.

Kveðja
Halli]]>
Ís- og alpaklifur Wed, 02 May 2012 09:54:58 +0000
Titill: Banff Mountain Film Festival 2012 - af: Arnar Jónsson http://isalp.net/forum/5-almennt/13184-banff-mountain-film-festival-2012.html#13184 http://isalp.net/forum/5-almennt/13184-banff-mountain-film-festival-2012.html#13184
Nú fer að nálgasta í stærsta viðburð sófklifrarans á árinu en það er hin árlega fjalla kvikmyndahátíð BANFF :)

Dagskráin er kominn á netið og hægt er að horfa á trailer hátíðarinnar á undirsíðu hátíðarinnar hér. (Ekki eru þó sýndar allar myndirnar sem eru í trailerinum.)

Þess má geta að miðar verða seldir á miði.is í forsölu og svo á hátíðinni sjálfri. Forsala hefst þó ekki fyrr en eftir helgi svo að "kaupa miða" takkinn verður ekki virkur fyrr en þá og mun það vera tilkynnt hér á vefnum þegar það verður hægt.

Stjórnin mun svo koma með ýtarlega grein á næstu dögum um hátíðina og miðakaup.]]>
Almennt Fri, 27 Apr 2012 22:21:41 +0000
Titill: Sydstasula this WE - af: Daniel TRICHOT http://isalp.net/forum/9-skiei-og-bretti/13182-sydstasula-this-we.html#13182 http://isalp.net/forum/9-skiei-og-bretti/13182-sydstasula-this-we.html#13182 Good ski last sunday & many people. 10 people together on the south slope !!!! Never seen for all the winter!
We went to the top by the North ridge.
See
picasaweb.google.com/danmar38/22_04_Sydstasula?authuser=0&authkey=Gv1sRgCLC2jcCR_9XzmQE&feat=directlink

We met somebody from Isalp, but I did not remenber his name.
Does somebody want to do something with us this sunday? Forecast weather seems good.
email to
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ]]>
Skíði og bretti Fri, 27 Apr 2012 18:51:48 +0000
Titill: Stækkum klifurhúsið - af: Hilmar Ingimundarson http://isalp.net/forum/8-klettaklifur/13175-staekkum-klifurhusie.html#13175 http://isalp.net/forum/8-klettaklifur/13175-staekkum-klifurhusie.html#13175
09.03.2012

Þessi tillaga hefur verið afgreidd af íþrótta- og tómstundaráði.

Úr bókun íþrótta- og tómstundaráðs:

,,Ár 2012, föstudaginn 9. mars var haldinn 158. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Höfðatorgi og hófst kl. 11:10.

9. Lögð fram ábending af samráðsvefnum Betri Reykjavík - " Stækka Klifurhúsið!"

Stjórn íþrótta- og tómstundaráðs hefur á sínum fundum rætt húsnæðismál Klifurfélagisns og hefur falið Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar að finna hentugt húsnæði fyrir klifuríþróttina. Vonir standa til að tillögur liggi fyrir mjög fljótlega. Þess ber að geta að ÍTR hefur þegar veitt styrki til Klifurfélagsins sem nýst hefur núverandi starfsemi félagsins."

Vefumsjónarmaður
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
betrireykjavik.is]]>
Klettaklifur Wed, 25 Apr 2012 11:47:56 +0000
Titill: Nýjar leiðir í Pöstunum - af: Jósef Sigurðsson http://isalp.net/forum/8-klettaklifur/13172-nyjar-leieir-i-poestunum.html#13172 http://isalp.net/forum/8-klettaklifur/13172-nyjar-leieir-i-poestunum.html#13172
Önnur leiðin liggur á horninu hægra megin (austan) við leiðina Vippan og hefur fengið nafnið Testósterón jóga. Erfiðleikinn er á bilinu 5.10a/b. Hin leiðin, Hornafræði alþýðunnar, er hægra megin (austan) við leiðina Sóley og er ca. 5.9.

Upplýsingar um klifur í Pöstunum og leiðarvísi sem Jafet tók saman má finna hér. Athugið að Vippan, leið sem Kristín Martha boltaði í fyrra, er ekki merkt í leiðarvísinum en hún er á móti Heyvagninum á horninu.

Jósef]]>
Klettaklifur Wed, 25 Apr 2012 08:57:08 +0000
Titill: Hvernig eru aðstæður á Snæfellsjökli? - af: Andri Sveinsson http://isalp.net/forum/5-almennt/13171-hvernig-eru-aestaeeur-a-snaefellsjoekli.html#13171 http://isalp.net/forum/5-almennt/13171-hvernig-eru-aestaeeur-a-snaefellsjoekli.html#13171 Almennt Tue, 24 Apr 2012 14:43:15 +0000 Titill: Petzl meteor hjálmar - af: Ágúst Þór Gunnlaugsson http://isalp.net/forum/5-almennt/13158-petzl-meteor-hjalmar.html#13158 http://isalp.net/forum/5-almennt/13158-petzl-meteor-hjalmar.html#13158
Hefur einhver reynslu af þessum hjálmum?

Ági]]>
Almennt Sat, 21 Apr 2012 16:41:43 +0000