
Skrifað af: God Godson Þriðjudagur, 26. maí 2009 22:04
Öllum er frjálst að skrá sig á póstlistan til að fá sendan tölvupóst reglulega um að það nýjasta sem finna má hér á vefnum hverju sinni. Öllum er frjálst að skrá sig hér á vefinn til að geta skrifað á umræðusíðurnar, skrifað greinar, birt myndir og fleira. Þeir sem skrá sig hér á vefinn eru þar með einnig skráðir á póstlistan. Þeir sem skrá sig í Ísalp hér á vefnum eru þar með einnig skráðir hér á vefinn. Þeir geta valið hvort þeir skrá sig einnig á póstlistan.
Haga skal notkun í samræmi við góða siði sem almennt eru viðurkenndir á vefnum. Misnotkun verður ekki liðin.
Allir notendur vefsins þurfa að gefa upp fullt nafn, heimilisfang, netfang og kennitölu við skráningu.
Notandi má eingöngu nota vefinn á eigin kennitölu.
Hver einstaklingur má eingöngu hafa einn notanda á vefnum.
Brot á reglum þessum varðar banni frá vefnum.
Texti og myndir hér á vefnum er birtur með höfundarnafni. Með því að senda til vefnefndar eða setja sjálfur inn efni hér á vefinn, gefur viðkomandi leyfi til þess að vefefnið verði birt hér á vefnum til framtíðar. Hann leyfir þar með einnig að hluti efnisins birtist á öðru formi, á öðrum síðum hér á vefnum og á póstlista hans. Viðkomandi er ábyrgur fyrir því efni sem hann setur inn, meðal annars að hann hafi leyfi til að birta viðkomandi efni og höfundarnafn sé rétt skráð.